Saturday, August 30, 2008

daddara

Var að skoða heimasíðuna hjá leikskólanum hennar Hafdísar Unu.... ekkert smá gaman að geta fylgst með svona úr fjarlægð hvað hún er að gera þarna :)

Þessi mynd var meðal annars þar :) hehehheh OF krúttleg :)

Annars eyddi ég föstudagskvöldinu bara í það að skipuleggja skólann... fór yfir allar námsáætlanir og skráði samviskusamlega í dagbókina hvað ætti að lesa heima fyrir hvern dag og hvenar ætti að skila verkefnum...... og ég sá það að það verður FULLT að gera :S Ennnn það verður bara gaman að takast á við það.
Það er Akureyrarvaka þessa helgi.... spurning hvort maður tékki eitthvað á dagskránni þar.... hélt að það ætti að vera flugeldasýning, en sé það hvergi á dagskránni.... væri svo til í að kíkja aðeins á bæjinn í kvöld, bara með HU í kerru og hafa það kósý. Þarf að skoða dagskránna aðeins betur.

Jæja er að spá í að skella mér í ræktina, ath hvort að Hafdís Una samþykki það að vera í pössun þar meðan mamman reynir að brenna speeki. Birkir er nefnilega að vinna, en ekki hvað!!! :) er sko alveg farin að þrá að komast í bústað.... er ekki einhver til í að hittast á miðri leið í vetur og kíkja í bústað???????
Annars erum við að fara suður næstu helgi.... tengdamamma er 80 ára.... jebb :) hún er orðin stór þessi yndislega kona :) hehe hún á afmæli á sunnudaginn og verður afmælið upp í bústað á sunnudeginum.... þannig að við förum örugglega suður á föstud og komum norður aftur á mánudegi.

Jæja over and out.

1 comment:

Anonymous said...

Sæta krútta.. bara dúlla hún Hafdís Una! ....vá hvað þú ert skipulögð... bara dugleg!!
Við skulum koma í bústað!! ooo það er svo kósý!
Væri gaman að hittast eitthvað næstu helgi.... verðum í bandi skvísí!

Knúsiknús..TInsí Pinsí