Ég er búin að vera að taka ofurskipulagið á þetta.... er búin að lesa heima fyrir tímana :) hehe maður á það nefnilega til að vera SMÁ kærulaus svona fyrstu dagana... ææ skólinn bara rétt að hefjast... en nú er það ekki í boði.... harkan 666666666!!!!
Byrjaði í leikfimi í gær, í Bjargarbotla, sem er svona einhvert sambland af Fit-pilates, jóga ofl. Fínasti tími. Var síðasta vetur í líkamsræktarstöðinni Átak og fannst það æði. Var þar í fit-pilates og var rosa ánægð. En svo ákvað ég að prufa allavega eitt námskeið í Bjargi. Spara bensínið :) hehe ææ maður verður pínu að horfa á það þessa dagana, sérstaklega þegar maður á Dísel jeppa.... hvaða rugl er það :) Nú hjóla ég í leikfimina og finnst það æði, rosa gott að fá upphitunina á leiðinni í tímann :) ætla samt að reyna að vera tímanlega til að geta farið smá á hlaupabrettið líka... ná upp góðri brennslu. Svo er bara að sjá hvort ég taki annað námskeið þarna ;) eða færi mig aftur í Átak... sjáum til :)
Fór eftir leikfimi niður til Sibbu með gamlar myndir og fékk að skanna þær inn. Myndir af mér, Birki og Ívari :) ekkert smá gaman að geta skannað þær inn og komið þeim í tölvuform :) skelli inn tvem, smá sýnishorn af gamla settinu :) hehe
3 comments:
Ja það er alveg pottþétt að hún hefur gretturnar frá þér...en annars finnst mér hún nú líkari pabba sínum á þessum myndum.
Sjáumst eftir smá,
Sibba loksins niðri.
Mér fynnst Hafdís Una góð blanda af þér og Birki, en samála Sibbu hún hefur gretturnar frá þér...hahahaha;)Kv.bella
Mér finnst hún nú líkari þér þegar ég sé akkúrat þessa mynd :)
En það er nú ekki hægt að segja að hún sé lík þínu fólki hahahaha....
Ég sé stundum smá svip frá Thelmu og Dagný!:)
Knús í kotið :)
Post a Comment