Í gærkveldi á meðan ég var að prenta út próf stalst ég til að taka smá rúnt á netinu og kíkti aðeins inn á síðuna sem við vinkonurnar erum með og það var nú ekki mikið að gerast þar þannig að ég fór eitthvað að kíkja í myndaalbúmin.... og þar sá ég að það er ár núna 5 mai síðan að Sif og Hlynur giftu sig og VÁÁÁÁ hvað var gaman. Það voru allir svo fínir, og þetta var bara hreinlega partý aldarinnar :) vorum svo margar ný hættar með krakkana á brjósti og ekkert búnar að djamma síðan þau fæddust :) þannig að það var sko tekið á því :) hehe ekkert smá gaman að skoða þessar myndir aftur :) ætla að koma með smá myndabrot :)
Ég og Helga
Frú Sif
og brúðarvalsinn var tekinn við súperman lagið :) Hlynur snéri Sif í þvílíkri sveiflu og renndi neðan af kjólnum hennar.... algjör snilld :) þannig að nú var sko hægt að TJÚTTA :)
Þessi mynd af Boggu segir allt sem segja þarf um stemninguna, kasólétt í þvílíkri sveiflu :) hehe
Þannig að spurningin er bara.....HVER ÆTLAR AÐ GIFTA SIG NÆST???????
Jæja gengur víst ekki lengur. Er að fá taugaáfall yfir þessu lífeðlisfræðiprófi.... ætla að finna eitthvað í matinn og drífa mig svo niður í skóla og læra fram á nótt held ég.... held ég sofi bara eftir mánudaginn... þá eru þessi tvö erfiðu próf búin.... Hugmyndafræði og kenningar svo á fimmtudeginum og þá er þetta búið :)
Over and out
Lífeðlisfræðilegt knús :)