Thursday, April 17, 2008

að lesa fyrir próf í GLAMPANDI SÓL....

ekki það skemmtilegasta sem maður gerir.... ENN maður tók víst þessa ákvörðun :) Hef reyndar verið rosa dugleg að fara með Hafdísi Unu í sund eftir kl 4.... veðrir er búið að vera svo geggjað að við höfum verið að fara hálf 5 og koma heim hálf 7, þá borðar hún, háttar, tannburstar og ROTAST :) hehe algjörlega búin þessi elska. Vonandi verður veðrið svona fínt áfram. Svo gott að geta tekið sér smá pásu frá lærdóm og dúllað sér í sundi með skottunni... yndislegur tími.

Birkir ætlar suður með Hafdísi Unu í næstu viku á miðvikudags kvöldið... SNÖKT... enn samt ágætt upp á lærdóminn að gera. Enn úfff frá miðvikudegi til sunnudags. Ég verð sko komin með tremma af söknuði á sunnudeginum. Enn get líka SÖKT mér bækurnar alla þessa daga... frá morgni til kvölds.... sem er náttl bara fínt.... það veitir allavega EKKI af því... úff púfff. Erum búnar að vera að læra fyrir próf síðustu daga og SHIIIIITTTT hvað við eigum mikið eftir.

Enn það gerist víst lítið ef ég er bara að skrifa blogg :) hehe enn langar að skora á alla sem lesa að KVITTA :) KOMA SVO :) bara fyrir mig :)

STÓRT knús á alla. Hlakka til að heyra í ykkur öllum eftir 8.mai :) held að ég verði ekki mjög virk hérna þangað til. Enn aldrei að vita nema það laumist ein og ein færsla.... eða þá myndafærsla.

ooo ætlaði að setja inn mynd með.... enn það koma alltaf error...

4 comments:

Helga Björg said...

Duglega vinkona mín :)
Þú ert alveg Valgý megamega.... Þó það verði erfitt að vera bara aleinur heima þá áttu örugglega eftir að læra eins og þú eigir lífið að leysa þessa daga! :) Og rúllar þessu upp eins og þér einni er lagið :)

Sendi knús í kotið og ég fæ nú kannski að bjalla eitthvað á þig og trufla þig fljótlega :)

Lærdómsstraumar eru hér með sendir :)

Anonymous said...

kvitt kvitt...ert ekkert smá dugleg!

kv. Katrín

p.s. settu símann bara á silent ef þú ert sofnuð, svo að við Tinna förum ekki að vekja þreyttan námsmann í próflestri;-)hehe

Anonymous said...

Hæ, þú duglega vinkona mín. Hlakka til að sjá ykkur á morgun og byrja að læra á nýjan leik. Veit ekki hvað ég á af mér að gera núna þegar ég er ekki að læra.

Knús Sibba.

Unknown said...

Bara kvitta fyrir komuna,
gangi þér vel með lærdóminn.