Sunday, April 13, 2008

daddaraaaaa

Já þetta er alveg ótrúlegt.... hvað maður finnur sér alltaf eitthvað annað að gera þegar maður á að vara að læra :) ég á semsagt að vera að læra NÚNA :) hehe enn ákvað að taka mér SMÁ pásu til að henda inn SMÁ færslu hérna :)

ALlavega að þá fór ég í vísindaferð á föstudaginn og það var líka bara svona gaman. Ekkert smá gott að taka smá svona tjútt fyrir komandi vikur.... það er sko komið stíft próflærdóms prógram næstu vikurnar. Þannig að nú verður ekki litið upp úr bókum fyrr enn eftir 8.mai nk.

Enn aftur að vísindaferðinni:
Við byrjuðum kl 18 hundruð í kaupþing banka og fengum heldur betur glæstar móttökur þar. Rosa flottar snittur og pinnamatur, bjór, rautt og hvítt. Og ekki skemmti að það var bara þræl hress strákur sem hélt fyrirlestur... átti nú að vera sölufyrirlestur... enn held að allir séu nú orðinir svo hræddir í peningamálum þessa dagana að þetta hafi svosem farið inn um eitt og út um hitt :) hehe Síðasta atriðið þarna var svo spurningakeppni. Þar kepptu Iðjur á móti Hjúkkum og það er náttl ekki að spyrja að leikslokum :) hehe Iðjurnar unnu náttl.... enn ekki hvað :)hahahhaha
Eftir kaupþing var haldið á Kaffi Akureyri... þar var aðalfundur Eirar sem var nú bara stuttur og laggóður... happdrætti trúbador ofl skemmtielgt. Og talandi um happdrættið.... mig minnir að ég hafi unnið eitthvað... andlitsljós, pizzu og eitthvað annað sem ég get ómögulega munað hvað var.... fáum vinningana ekki fyrr enn á þriðjudaginn :) verður spennandi að sjá :) Það var aðeins dansað og sungið enn svo stakk ég af rúmlega 12 :( sorry.... er skelfileg í þessu :) hehe ætla alltaf bara að taka smá rölt, fara á klóið eða eitthvað og sting svo bara af heim :( Sorry Linda, Stebbi og María :) Verð lengur næst :) hehe Enn þetta var í alla staði mjög skemmilegt kvöld.

Jæja VERÐ að halda áfram að læra......

Enn já ætla nú ekki að gleyma AÐAL fréttunum..... ég er að fá GESTI :) SJIIBBÍÍí ..... jebbb fékk ótrúlega skemmtilegt sms um daginn frá Boggunni minni... þau eru að koma um hvítasunnuhelgina :) gæti ekki verið glaðari yfir þessu :) verð ný búin með prófin og SVO til í spil ,spjall og SMÁ hvítt :) eehh

vell over and out

Nokkrar myndir úr Vísó

Ég og Linda

það var drukkið eitt eða tvö svona glös :) hehe
Ég og Lára

2 comments:

Helga Björg said...

ohh ég hlakka svo mikið til að taka djammið um næstu helgi! :)
Verður bara gaman!!!

Ég er svo aaaaaalveg að fara að koma í heimsókn... :)

Bið að heilsa í bili - gangi þér vel að læra mín kæra... ;)

Anonymous said...

Takk fyrir sundferðina í dag. Allt hefst þetta að lokun ;-)

Sjáumst í skólanum á morgun.

Knús Sibba.