Tuesday, December 8, 2009

.....

langar að blogga áfram en ætla að læsa síðunni ;) spurning hvort ég kunni það :=) hehe

Saturday, March 21, 2009

Tjaaa

Já var búin að lofa að reyna að vera dugleg hér :) hehe annars held ég að flestir séu nú hættir að blogga, eftir að þetta fés tröllreið yfir allt og alla :) Það eru einungis hörðustu bloggararnir eftir, eins og Helga :)

En árshátíðin var FRábær... ótrúlega vel heppnuð skemmtun með skemmtilegu fólki. Kjóllinn varð ekki alveg jafn mikið prom og myndin í síðustu færslu :) hehe en fín vorum við hjúin í fjólubláu þema

Annars er bara gott af okkur að frétta. ÉG er hálfnuð með verknámið mitt. Er í verknámi upp á Kristnesi og er er mjööög ánægð.
Svo þegar verknámið er búið að þá er komið að páskafríi, sem ég held að fari að mestu í próflestur. Það eru held ég tvær vikur í próf eftir páska :S eeennn þetta hlýtur að rúllast upp. Prófin klárast svo 7.maí og mér sýnist allt stefna í að Maí verði minn sumarfrís mánuður. Langar að gera eitthvað þá, fara í bústað og eitthvað kósý.

Jæja ætla að klára að þrífa meðan skottan sefur og halda svo áfram að knúsa hana þegar hún vaknar... skottan er lasin enþá, veiktist á sunnudaginn fyrir viku, var búin að hrista þetta af sér á fimmtudaginn en ákvað svo aftur á föstudaginn að verða meira lasin :( vonandi nær hún að klára þetta um helgina.

over and out

Tuesday, March 3, 2009

Gott með mig

já ég er ofur dugleg að blogga :) stend mig vel :) hehe

Spurning um að fara að prufa að setja sig í blogg gírinn aftur??

Það sem er um að vera í lífi mínu þessa dagana er að það er Árshátíð hjá skólanum á laugardaginn og það er Prom þema og ég á ekkert til að fara í :( en það hlýtur að reddast... verður að reddast... því að mig hlakkar ferlega mikið til. Ljótu hálfitarnir verða veislustjórar og svo er ball með Palla á eftir.... held það geti ekki klikkað.

Væri til í einn svona :) hehehhe

Svo byrjar fyrsta verknámið á mánudaginn.... úff púff... alveg pínu stress í gangi... EENN hlakka samt líka mjög mikið til.

En kem með fréttir eftir árshátíð.... og kannski myndir

Valgý ,,ofur,, bloggari

Tuesday, December 23, 2008

Jóla...jóla... jólajóla

Já nú er þetta bara að skella á. Jólin bara á morgun og allt að verða reddý.

Komum suður á laugardaginn og skottan byrjaði á að næla sér í hita..... þannig að fyrstu tveir dagarnir fóru í að hafa það MEGA kósý og gera ekkert. Ég fór á sunnud.kvöldinu og hitti skvísurnar mínar, Sif og Helgu og tókum við okkar árlega laugarveg. BARA yndi.... röltum allan laugarann, fengum okkur kaffi to go og röltum meira. Fórum inn á Solon og borðuðum, fengum okkur hvítt og kjöftuðum. Bara snilldar kvöld.

Svo var skottan mun hressari í gær og ákvaðum við því að fara í hveró og á Hellu í dag. Hitta Ía okkar, ömmur og afa ofl. Skottan var rosa hress fyrripartinn en rauk svo upp í 39 stiga hita um kaffileiti þannig að við brunuðum bara í bæinn þegar búið var að gera það allra nauðsynlegasta. Vorum á leið í mat til Sifjar og co en ég fór bara ein og þau feðginin knúsuðust heima á meðan. Helga og Gulli voru líka hjá Sif og vá SNIIIIILLLLDDDAAARRR súpa sem Sif ofur kokkur bauð uppá. Hef bara sjaldan smakkað jafn góða súpu...... verð klárlega að fá uppskriftina. Takk fyrir mig Sif mín... alltaf SVOOO gott og gaman að koma til þín ;)

Svo sit ég hér ein, klára að skreyta tréið, hlusta á Bubba á Bylgjunni og skrifa þessa færslu :) Birkir sofnaði með skvísuni. Hann er orðinn hálf slappur líka :( vonandi hristir hann það af sér fljótt.

En VÁÁÁ hvað ég var búin að gleyma hvað það er leiðinlegt að keyra í rkv. Sjeeeettt er ekkert að grínast.... skil ekki hvað fólk getur verið ótrúlega stressað hérna. Ég skaust í gær og ætlaði að klára smá sem eftir var og ég er ekkert að grínast en ég var bara mega hrædd að keyra Miklubrautina. Fólk var að TAPA sér. Bibandi, svínandi og klessandi á hvort annað :S Ég keyrði að Kringlunni og þar var margra kílómetra röð inn og út af öllum bílastæðum og ég hætti SNARLEGA við að þurfa að fara þangað inn...... ákvað að prufa að fara á Korputorg.... er eitthvað verið að grínast með það????? Torg hvað? Þetta er margra kílómetra langt hús, ekki gegnumgengt á milli búða, ca 3 búðir í öllum þessum kílómetrum og eins og veðrið var í gær var þetta EKKI að gera sig.
Var líka búin að gleyma hvað er ÓG langt á milli staða í rvk :) hahahhahaha er semsagt voða glöð með Akureyri akkurat núna :) hahhaha

Jæja ætla að klára að skreyta, hlusta, tölvast og taka til og koma mér svo að sofa með feðginunum sem kúra sig saman upp í hjónarúmi :)

Monday, December 15, 2008

og svo var bara komið jólafrí :)

já lítið gerst hér :)

En jólafríið er skollið á á þessum bæ :) og ég er að fíla það :)

Gekk ágætlega í prófunum.... allavega þangað til annað kemur í ljós :) en nú er biðin endalausa.... er komin með SIbbu veikina á þetta og farin að kíkja á HA síðuna ansi oft á dag :) hehe enda á fyrsta eink að koma í hús í síðastalagi á miðvikudaginn... úff úr fyrsta prófinu sem var líffærafræði heilans..... krossum putta og VOOOOOOOOONUM það besta :) Er komin með eina eink, úr próflausa áfanganum og fékk 8,5. Maður er nú svo klikk að maður vill alltaf meira :( hefði alveg viljað 9 í þessum áfanga. En er samt bara alveg sátt.

Það var próflokadjamm á föstudeginum og ég var bara ekki að meika að fara. Birkir eldaði humar handa mér og Sibbu til að fagna próflokum...mmmmm humar ala Birkir klikkar ALDREI.
Svo kíkti ég aðeins niður til Sibbu og drakk 2 Mojito og kom mér svo heim að sofa. María gisti hjá okkur föstud nóttina og svo svissuðum við á laugardagsnóttina :) þá gisti HU hjá Sibbu sín og Maja sín :) og við hjónin skelltum okkur á jólahlaðborð á hótel KEA, á kaffi amor og svo á vélsmiðjuna á Hara systur, Abba þema. Þær systur klikka sko ekki frekar en fyrri daginn. Við hjúin náðum að hanga úti til hálf 4 :) hefur ekki gerst í mörg ár :) YNDISLEGT kvöld með skemmtilegu fólki.
Við hjúin á leið á jólahlaðborð :)

Ótrúlegt hvað er stutt til jóla..... við stefnum á að keyra suður snemma 20.des. Verðum í rvk á aðfangadag, við og pabbi. Verður voða kósý. Svo er það jóladagur hjá ömmu og afa. Það eru ekki jól án þess að fara þangað :) hlakka svo til að hitta alla fjölskylduna þar :)
Svo er bara óráðið hvernig áramótin verða??? Rvk eða Hveró???

SKottan byrjaði jólafríið á að verða veik..... held reyndar að henni hafi bara vantað mömmudag :) við mægður kúrðum okkur til kl 12 í hádeginu :) BARA NICE.... gerist aldrei á þessum bæ :)

Jæja ætla að halda áfram að knúsast í skottunni ;)
svo er spurning hvort maður prufi að reyna að baka sörur á morgun :S langar SVOO í smá sörur :) sjáum til hvernig þolinmæðin tekur því :) hehe

Jólaknús

Thursday, November 13, 2008

1 og hvað svo....

... held ég þurfi að læra að telja upp á nýtt..... það var 1. nóv og svo 11.nóv...... og á morgun er 14.nóv HVAÐ ER ÞAÐ?? sem þýðir það að það eru nákvæmlega 18 dagar í fyrsta prófið.... og ég á eftir að læra SVOOOOOOOO mikið.....

......... bretti ermar upp að öxlum og massa þetta........ ekkert annað í boði!!!!!


Átti frábært kvöld í kvöld..... fór á kaffihús með henni Birnu og það var bara yndislegt.... kjöftuðum frá okkur allt vit ;) algjörlega nauðsynlegt að komast út og tala um ALLT annað en skóla :) hehe

Svo á morgun verður rómó kósý kvöld hjá okkur hjúum ;) Nína ætlar að koma og passa prinsessuna og við ætlum á kaffihús, í bíó og eitthvað huggulegt ;) búið að vera svo mikið að gera hjá okkur svo lengi að við höfum ekkert gert saman.... og svo er að byrja önnur törn... prófatörn... þannig að þetta verður yndislegt.. að komast tvö saman og hafa það kósý í smá stund :)

Jæja ætla að klára að lesa eina grein um handbeitingu... er að vinna síðasta verkefnið þessa önnina.... er að vinna verkefni í Hreyfingafræði um það að skrifa með penna frá 1 árs til unglingsára.... þ.e. þróun handbeitingar. SPENNANDI?? ;)

stórt knús ;)

Wednesday, November 5, 2008

............

já þetta blogg er ekki að gera sig þessa dagana. Hef bara hreinlega ekki haft tíma til að skrifa neitt... oft sem mig langar að fá smá útrás hérna... en ekki tími til þess. Hef varla vitað hvað snýr upp og hvað snýr niður þessa dagana.... og prófatíðin er EKKI byrjuð. sjææjjs

En þetta hefst allt á endanum..... eins og alltaf.

en ojj.... var að googla eitthvað um daginn... leita af heimildum og ákvað að prufa að slá inn nafnið mitt og ég fékk alveg pínu sjokk..... æææ ég er svo ljóshærð með þetta net... hehe manni finnst maður bara vera að skrifa eitthvað sem nokkrir vinir lesa.... en svo er bara ekki og svo langt frá því :S þannig að ég er að spá í að læsa þessu bloggi. Ef ég ákveð að halda áfram með það..... er eitthvað ekki í blogg stuði þessa dagana... en það getur breyst eins og svo oft áður :) ehehe

en ef ég læsi því verður leyniorðið það sama og var á síðunni hjá Hafdísi Unu :)

en ætla að fara að horfa á dýrin í hálsaskógi með HU... hehe var ég ekki að segja um daginn að hún horfði ekki mikið á tv :) en þegar allir eru þreyttir og pirraðir að þá er þetta mjög gott meðal fyrir alla. Liggjum saman, knúsums og horfum .... getur ekki verið slæmt ;) hehe

over and out