Tuesday, December 23, 2008

Jóla...jóla... jólajóla

Já nú er þetta bara að skella á. Jólin bara á morgun og allt að verða reddý.

Komum suður á laugardaginn og skottan byrjaði á að næla sér í hita..... þannig að fyrstu tveir dagarnir fóru í að hafa það MEGA kósý og gera ekkert. Ég fór á sunnud.kvöldinu og hitti skvísurnar mínar, Sif og Helgu og tókum við okkar árlega laugarveg. BARA yndi.... röltum allan laugarann, fengum okkur kaffi to go og röltum meira. Fórum inn á Solon og borðuðum, fengum okkur hvítt og kjöftuðum. Bara snilldar kvöld.

Svo var skottan mun hressari í gær og ákvaðum við því að fara í hveró og á Hellu í dag. Hitta Ía okkar, ömmur og afa ofl. Skottan var rosa hress fyrripartinn en rauk svo upp í 39 stiga hita um kaffileiti þannig að við brunuðum bara í bæinn þegar búið var að gera það allra nauðsynlegasta. Vorum á leið í mat til Sifjar og co en ég fór bara ein og þau feðginin knúsuðust heima á meðan. Helga og Gulli voru líka hjá Sif og vá SNIIIIILLLLDDDAAARRR súpa sem Sif ofur kokkur bauð uppá. Hef bara sjaldan smakkað jafn góða súpu...... verð klárlega að fá uppskriftina. Takk fyrir mig Sif mín... alltaf SVOOO gott og gaman að koma til þín ;)

Svo sit ég hér ein, klára að skreyta tréið, hlusta á Bubba á Bylgjunni og skrifa þessa færslu :) Birkir sofnaði með skvísuni. Hann er orðinn hálf slappur líka :( vonandi hristir hann það af sér fljótt.

En VÁÁÁ hvað ég var búin að gleyma hvað það er leiðinlegt að keyra í rkv. Sjeeeettt er ekkert að grínast.... skil ekki hvað fólk getur verið ótrúlega stressað hérna. Ég skaust í gær og ætlaði að klára smá sem eftir var og ég er ekkert að grínast en ég var bara mega hrædd að keyra Miklubrautina. Fólk var að TAPA sér. Bibandi, svínandi og klessandi á hvort annað :S Ég keyrði að Kringlunni og þar var margra kílómetra röð inn og út af öllum bílastæðum og ég hætti SNARLEGA við að þurfa að fara þangað inn...... ákvað að prufa að fara á Korputorg.... er eitthvað verið að grínast með það????? Torg hvað? Þetta er margra kílómetra langt hús, ekki gegnumgengt á milli búða, ca 3 búðir í öllum þessum kílómetrum og eins og veðrið var í gær var þetta EKKI að gera sig.
Var líka búin að gleyma hvað er ÓG langt á milli staða í rvk :) hahahhahaha er semsagt voða glöð með Akureyri akkurat núna :) hahhaha

Jæja ætla að klára að skreyta, hlusta, tölvast og taka til og koma mér svo að sofa með feðginunum sem kúra sig saman upp í hjónarúmi :)

3 comments:

Anonymous said...

Bíddu bíddu!!!!!
Bara hætt að blogga!!
Er ekki sátt við það..... bloggdrottningin mikla;-)

Vil fara að fá nýja færslu sæta!
Svo ég geti nú fylgst með lífinu hjá ykkur á Akureyri city..

Knúsí...Tinna Rut

Hveróskvísurnar said...

hehe já úff ekki alveg að standa mig hérna í þessu bloggi :)
þarf að reyna að taka upp þráðinn aftur :)

Anonymous said...

hehe var skráð hingað inn á Hveróaðganginum greinilega :)