Monday, December 15, 2008

og svo var bara komið jólafrí :)

já lítið gerst hér :)

En jólafríið er skollið á á þessum bæ :) og ég er að fíla það :)

Gekk ágætlega í prófunum.... allavega þangað til annað kemur í ljós :) en nú er biðin endalausa.... er komin með SIbbu veikina á þetta og farin að kíkja á HA síðuna ansi oft á dag :) hehe enda á fyrsta eink að koma í hús í síðastalagi á miðvikudaginn... úff úr fyrsta prófinu sem var líffærafræði heilans..... krossum putta og VOOOOOOOOONUM það besta :) Er komin með eina eink, úr próflausa áfanganum og fékk 8,5. Maður er nú svo klikk að maður vill alltaf meira :( hefði alveg viljað 9 í þessum áfanga. En er samt bara alveg sátt.

Það var próflokadjamm á föstudeginum og ég var bara ekki að meika að fara. Birkir eldaði humar handa mér og Sibbu til að fagna próflokum...mmmmm humar ala Birkir klikkar ALDREI.
Svo kíkti ég aðeins niður til Sibbu og drakk 2 Mojito og kom mér svo heim að sofa. María gisti hjá okkur föstud nóttina og svo svissuðum við á laugardagsnóttina :) þá gisti HU hjá Sibbu sín og Maja sín :) og við hjónin skelltum okkur á jólahlaðborð á hótel KEA, á kaffi amor og svo á vélsmiðjuna á Hara systur, Abba þema. Þær systur klikka sko ekki frekar en fyrri daginn. Við hjúin náðum að hanga úti til hálf 4 :) hefur ekki gerst í mörg ár :) YNDISLEGT kvöld með skemmtilegu fólki.
Við hjúin á leið á jólahlaðborð :)

Ótrúlegt hvað er stutt til jóla..... við stefnum á að keyra suður snemma 20.des. Verðum í rvk á aðfangadag, við og pabbi. Verður voða kósý. Svo er það jóladagur hjá ömmu og afa. Það eru ekki jól án þess að fara þangað :) hlakka svo til að hitta alla fjölskylduna þar :)
Svo er bara óráðið hvernig áramótin verða??? Rvk eða Hveró???

SKottan byrjaði jólafríið á að verða veik..... held reyndar að henni hafi bara vantað mömmudag :) við mægður kúrðum okkur til kl 12 í hádeginu :) BARA NICE.... gerist aldrei á þessum bæ :)

Jæja ætla að halda áfram að knúsast í skottunni ;)
svo er spurning hvort maður prufi að reyna að baka sörur á morgun :S langar SVOO í smá sörur :) sjáum til hvernig þolinmæðin tekur því :) hehe

Jólaknús

2 comments:

Anonymous said...

Til hamingju að vera komin í frí!
Voðalega eruð þið sæt og fín á myndinni:-)
Hlakka til að hitta þig um júlen... eyddi einmitt öllum síðasta laugardag í sörugerð..umm bara gott!

Knúsí...Tinsí

Helga Björg said...

Humarinn hjá kallinum þínum klikkar sko ekki... maður étur bara alveg yfir sig!!! :) hehe...

En til lukku með prófin - ert alveg duglegust skvísin mín!!

Svo hlakka ég bara til að heyra í þér í dag með sörurnar! :) Jammíjammí...
Settu bara jólatónlist á, hafðu eitthvað "hollt" og gott að narta í og bara dundaðu þér! :) Þá klikkar þetta ekki...
Skálum í kaffi og sörur í kvöld hehe


Knús til þín frá Helgu söru... ;)