En árshátíðin var FRábær... ótrúlega vel heppnuð skemmtun með skemmtilegu fólki. Kjóllinn varð ekki alveg jafn mikið prom og myndin í síðustu færslu :) hehe en fín vorum við hjúin í fjólubláu þema

Annars er bara gott af okkur að frétta. ÉG er hálfnuð með verknámið mitt. Er í verknámi upp á Kristnesi og er er mjööög ánægð.
Svo þegar verknámið er búið að þá er komið að páskafríi, sem ég held að fari að mestu í próflestur. Það eru held ég tvær vikur í próf eftir páska :S eeennn þetta hlýtur að rúllast upp. Prófin klárast svo 7.maí og mér sýnist allt stefna í að Maí verði minn sumarfrís mánuður. Langar að gera eitthvað þá, fara í bústað og eitthvað kósý.
Jæja ætla að klára að þrífa meðan skottan sefur og halda svo áfram að knúsa hana þegar hún vaknar... skottan er lasin enþá, veiktist á sunnudaginn fyrir viku, var búin að hrista þetta af sér á fimmtudaginn en ákvað svo aftur á föstudaginn að verða meira lasin :( vonandi nær hún að klára þetta um helgina.
over and out
No comments:
Post a Comment