Wednesday, November 5, 2008

............

já þetta blogg er ekki að gera sig þessa dagana. Hef bara hreinlega ekki haft tíma til að skrifa neitt... oft sem mig langar að fá smá útrás hérna... en ekki tími til þess. Hef varla vitað hvað snýr upp og hvað snýr niður þessa dagana.... og prófatíðin er EKKI byrjuð. sjææjjs

En þetta hefst allt á endanum..... eins og alltaf.

en ojj.... var að googla eitthvað um daginn... leita af heimildum og ákvað að prufa að slá inn nafnið mitt og ég fékk alveg pínu sjokk..... æææ ég er svo ljóshærð með þetta net... hehe manni finnst maður bara vera að skrifa eitthvað sem nokkrir vinir lesa.... en svo er bara ekki og svo langt frá því :S þannig að ég er að spá í að læsa þessu bloggi. Ef ég ákveð að halda áfram með það..... er eitthvað ekki í blogg stuði þessa dagana... en það getur breyst eins og svo oft áður :) ehehe

en ef ég læsi því verður leyniorðið það sama og var á síðunni hjá Hafdísi Unu :)

en ætla að fara að horfa á dýrin í hálsaskógi með HU... hehe var ég ekki að segja um daginn að hún horfði ekki mikið á tv :) en þegar allir eru þreyttir og pirraðir að þá er þetta mjög gott meðal fyrir alla. Liggjum saman, knúsums og horfum .... getur ekki verið slæmt ;) hehe

over and out

2 comments:

Helga Björg said...

Já maður þarf aðeins að passa sig, enda er ég með allt læst hjá mér núna! Kæri mig ekki um að allir geti skoðað hvað ég er að gera!
Það er nefnilega alveg gaman að setja inn fréttir af familíunni og myndir fyrir vini og fjölskyldu! Veit t.d. að Jónu frænku og þeim úti finnst æði að geta fylgst með okkur...

Ágætt að googla sig af og til og athuga hvað kemur í ljós! :) hehehe....
CRAZZZZZZY :) :) :)

Anonymous said...

já fannst þetta bara creeeeepee..... en það var svo sem ekki mikið að finna nema það sem ég skrifa sjálf og þær myndir sem ég set inn sjálf... jú og ÓGEÐSLEG mynd úr fsu... NÝÝÝÝ vöknuð og klárlega ekki á leið í myndatöku :S ojj :) hehe