Wednesday, February 13, 2008

Bloggidi blogg


Við hjónin skelltum okkur í bíó í gærkveldi. Hún Sibba elskuleg kom niður og var með skottuna á meðan. Þúsund þakkir Sibba mín. Vonandi get ég endurgoldið þér greiðana þegar skottan þín flytur til þín :) verður æði að fá hana Maríu hingað til okkar :)

Við fórum að sjá Brúðguman... og hún er æði. Það er smá drama... maður getur hlegið og svo auðvitað er rassalingurinn hann Hilmir SNær að leika í henni og auðvitað sést smá í gluteus maximus :) og ekki fer hann versnandi með árunum :) hehehe snilldar mynd. Það var ótrúlega krúttlegt... það voru tvö börn með foreldrum sínum í bíó og þegar kelu atriðið kom að þá heyrðist mjög hátt.. OOOJJJJJ :) hehehe frekar krúttlegt. Og svo inn á milli þegar hann sagðist elska konuna sína að þá sagði stelpan... enn mamma hann er bara að plata hana... það er svo ljótt að plata svona :) hehe bara krúttur.

Það var nú að eins heitara í bíó þetta skiptið. Fór í bíó um daginn og hél ég myndi FRJÓSA.... svo í hléinu var kvartað og þá var loftræstinginn ÓVART að blása inn köldu.... shiitttt hvað var kalt. Svo var poppið ÓG salt, snakkið ÓG sterkt og mentosið hart :) hehehehhe EN myndin var góð :)

Vá hvað ég væri til í að henda skoppu og skrítlu og söngvaborg í ruslið þessa dagana... skottan búin að vera lasin í viku og búin að horfa ANSI mikið á þetta... úffff en hún er öll að hressast og fer vonandi til Lindu á morgun... er ´buin að vera hitalaust í 2 daga... en bara svo ÓG kvefuð að ég ákvað að vera með hana heima. Hún er komin á pensilín... var komin með sýkingu í eyrað... það dropaði sko úr eyranu á meðan við vorum á biðstofunni til læknisins. En hún er ölla að koma til... :)

Jæja ætla að fara að finna mig til.... Við Birkir skiptumst á að vera heima fyrir og eftir hádegi... hann er í vinnuni núna og svo fer ég í skólann eftir hádegi.


en já eitt.... ætli OB bensín sponseri Magna???? Það er OB bensínstöð á búðarplaninu hérna fyrir neðan okkur og það er alltaf tónlist... voða huggó að dæla bensíni við ljúfa tóna :) hehe en það mætti nú samt alveg skipta um disk af og til. Hef EKKERT á móti Magna... snilldar söngvari. EENN það er búið að spila diskinn hann síðan hann kom út... úfff og maður heyrir í þessu í hvert skipti sem maður labbar út í búð.
Bara smá vangavelt hérna :)

Jæja farin í skólan.

Luv

2 comments:

Helga Björg said...

Stelpan bara aktív :) hehe...

Mig langar einmitt hrikalega í bíó... margar myndir sem mig langar að sjá!!
Ein grenju væmin mynd sem ég ætla á með einhverri KVK - Gulli samþykkir ekki þá mynd :)

Bið að heilsa og það var vel tekið í 29 febrúar! Nú er það bara að redda íbúð :)
Allt fullt hjá VR en Gulli ætlar að ath með Verkalýðsfélag Akraness.... :)

Valgý Arna said...

JEeiiijjjjjj :) allt á fullt að leita af íbúð :) ógó spennt :)