Tuesday, May 13, 2008

1.árið í Iðjuþjálfun búið :)

Jábbb tíminn hefur gjörsamlega flogið áfram :) erum að verða búin að búa hérna á norðurlandinu í 1 ár... hvað er það!!! En þetta fyrsta ár er búið að vera rosa gott... þannig að ég hlakka bara til hinna þriggja :)
Prófin gengur bara ágætlega nema í lífeðlisfræðinni... er ekki komin með eink í henni EENN prófið var grín. Það er dregið niður fyrir röng svör og svo voru ritgerðaspurningarnar spes. Þannig að ég ætla bara að byrja að læra í vikunni, með bros á vör, (DJÓK) fyrir endurtekt sem verður 27.mai.

En próflokunum var fagnað. Prófljótan var líka kvödd :) hehe skellti mér í klipp og lit á föstudeginum og svo var hittingur hjá bekknum á Staðnum. Svo var partý hjá Ástu og svo var haldið á Kaffi Akureyri... Það var sólgleraugna og hatta þema... bara gaman. Kvöldið var rosa fínt.

Er eitthvað ekki að nenna að blogga núna... hálf sibbin eitthvað. Eftir FRÁBÆRA helgi... Fengum góða gesti... það var borðað, drukkið og spjallað :) BARA NICE. Takk fyrir komuna Boggan mín og co
Ætla að henda inn nokkrum myndum frá kvöldinu

Nokkrar skvísur ú bekknum í gírnum :)

Ég og ásta í pósu :)

Hress

úúú Anna Karen, ég og Ásta

Greinilega eitthvað farið framhjá Evu að það var Zoolander þema :) hehe
Stórt knús

3 comments:

Anonymous said...

O ég vildi að ég hefði verið með, lofa sjálfri mér hér með að missa ekki af næsta próflokadjammi!!!

Knús SIbba

Anonymous said...

Takk fyrir frábært kvöld Valgý. Þú kyssir einstaklega vel!;) hahahahaha.... ég er svo sannarlega klár í að endurtaka þetta í sumar fyrir okkur sem enn erum hér fyrir norðan! Ekki spurning!:)

..og Sibba! Gott loforð. Við söknuðum þín svakalega. Ég held að Stebbi hafi tekið upp sérstakt myndband fyrir þig, svo þú myndir ekki missa algjörlega af þessu! Það verður eitthvað skrautlegt að horfa á það! hehe.. Tilvalið að horfa á það á næsta djammi til að koma okkur í gírinn!;)

Knús og KOSSAR!!!;) Ásta Margrét

Helga Björg said...

Sætasæta :) Rosa flott á þér hárið!!
Get bara ekki beðið eftir að komast norður til þín!!!
bara ein vika og þá er ég komin... :)
jibbýjeiiiiii