Saturday, May 17, 2008

Sumarfríið mitt búið :(

Úff fékk nett sjokk þegar ég áttaði mig á því að 19.mai er á MÁNUDAGINN!!!!! Hvað er það. Þegar ég réð mig í vinnuna fannst mér eins og ég ætti alveg þónokkra daga í frí, frá því að skólinn kláraðist og þangað til 19. EENNNN þeir eru náttl búnir að þjóta áfram og mér finnst eins og hafi klárað prófin í GÆR. En ég er samt alveg spennt að byrja að vinna upp á Hlíð. Held ég verði bara ótrúlega sátt þarna. En það er svo skondið... maður ætlar alltaf að nota fríið sitt SVO vel :) ehehe ég ætlaði t.d að sauma mér peysu, þrífa allt hátt og lágt og sofa út og slappa af. EN er ekki búin að neinu... jú er að þrífa núna... er bara akkurat núna að bíða eftir að gólfið þorni :) hehe er þá nokkuð annað að gera við tíman enn að henda inn smá bloggfærslu :) thí hí Ætla svo að ráðast á geymsluna á eftir og henda öllu út úr henni og sortera. Ekki veitir af ef það verður af fluttningum. Sem ég vona svo INNILEGA. Er að bíða eftir svari frá manningum sem sér um stúdentagarðana. Hann ætlaði að ath hvað hann gæti gert í því að losa okkur sem fyrst úr Tröllagilinu. Það er náttl 3 mán uppsagnafrestur enn getum náttl ekki haldið hinni íbúðinni svo lengi. Þannig að ég krossa alla putta og allar tær um að þetta gangi og við flytjum um mánaðarmótin :) jeeiiiijjjj og þá verður sko UPPÞVOTTAVÉLIN sótt STRAX :) vá hvað ég get ekki beðið. Gubba á uppvaskið einn daginn. Shhiiiittt hvað það er leiðinlegt að vaska upp. Eða bara að þurfa að eiða tíma í það. Mér finnst ég sko alveg hafa nóg annað að gera enn að vaksa upp :) kannski má kalla þetta leti... enn rétt upp hönd sem finnst skemmtilegt að vaksa upp. Tala ekki um plássleysið sem við búum við núna(í eldhúsinu). En allavega að þá vona ég svo að þetta gangi upp. Ég þrífst ekki í svona óvissu :) hehe verður bara ekkert úr verki. Þarf að vita nákvæmlega hver dagskráin er til að geta skipulagt mig :)

Fór í sveitaferð með skottuna í gær. Dagmömmurnar fóru allar þannig að þetta voru 2 troðfullar rútur. Fórum í dýragarðinn að krossum. Bara frábær staður. Flott aðstaða.
mæðgur að skoða dýrin

úti að skoða geitur

Svo eftir sveitaferðina fórum við fjölskyldan, Sibba og María í Kjarnaskóg. Þvílík perla sem Kjarnaskógur er. Frábært veður og bara æði að rölta þarna um... smá svona útlanda fílingur :)


Jæja gólfið orðið þurrt og þá er engin afsökun lengur :)

Stefni svo á að nota rigningardagana í sumar til þess að sauma :)

Stórt knús

2 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir skógarferðina í gær, er svo fegin að hafa fengið að upplifa þetta með róluna með honum Birki :-)
Gangi þér rosa vel í vinnunni á mánudaginn, mitt frí varir enn :-)

Helga Björg said...

Sælar mín kæra.... fyrsti vinnudagurinn í dag bara... :)

Hlakka svo til að koma til þín eftir bara nokkra daga :) Bara 4 dagar þangað til!!!
Rauðvín, Brynjuís, Greifinn, sund... mmm..... sweet! :) :)